Eftirfarandi skilmálar, gilda í vefverslun Leikskólans Sjáland
Pantanir
Vefverslun Leikskólans Sjálands , tekur við pöntunum allan sólarhringinn.
Strax og greiðsla berst, sendum við þér staðfestingu á pöntuninni í tölvupósti og þar með er kominn á samningur, á milli kaupanda og Sjálands.
Greiðsla pantana
Hægt er að greiða með, VISA, MASTERCARD eða AMEX, greiðslukortum á öruggri greiðslusíðu hjá Borgun ehf.
Öll vinnsla kreditkortanúmera á netinu, fer í gegnum vottaða greiðslusíðu Borgunar (www.borgun.is ) og er dulkóðuð svo að öryggi kaupenda sé tryggt.
Seljandi geymir þannig engar kreditkortaupplýsingar frá kaupanda.
Afhending vöru
Allar pantanir úr vefverslun eru teknar saman 25. hvers mánaðar og sendar til HENSON það tekur 10 daga að afgreiða pöntunina. Þegar vörurnar eru komnar í Leikskólann Sjáland frá HENSON er þeim pakkað og settar og hólf viðkomandi barns.
Verð
Öll verð í netversluninni eru með virðisaukaskatti. Öll verð eru birt með fyrirvara um myndabrengl eða prentvillur.
Vörur
Upplýsingar um vörur, eru settar fram eftir bestu vitund seljanda hverju sinni. Í framsetningu upplýsinga gerir seljandi fyrirvara um bilanir, birtingar- og/eða innsláttarvillur í myndum og texta. Sé vara uppseld, áskilur verslunin sér rétt til að fella niður pöntun kaupanda, að hluta til eða í heild. Kaupanda er ávallt tilkynnt um slíkar ákvarðanir og honum boðið að breyta pöntuninni eða samþykkja niðurfellingu hennar. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis, ef með þarf.
Skilaréttur
Samkvæmt lögum nr. 46/2000 um húsgöngu- og fjarsölusamninga, getur neytandi fallið frá samningi um kaup á vöru yfir netið, innan 14 daga frá pöntun, með skriflegri yfirlýsingu. Þó er sendingarkostnaður ekki endurgreiddur, nema um galla sé að ræða.
Hægt er að skila eða skipta vöru, sem keypt er í verslun okkar eða í vefverslun, að því tilskildu að varan hafi ekki verið notuð eða þvegin og henni sé skilað í góðu lagi. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með.
Ábyrgð
Ábyrgð er á öllum vörum gegn framleiðslugöllum. Ábyrgðin nær ekki til slits, skemmda eða rangrar meðhöndlunar, sem verða við notkun og eru á ábyrgð kaupanda.
Ef bæta þarf vöru vegna galla eru þær bætur í formi sömu eða sambærilegrar vöru. Upphæð bóta vegna galla verður aldrei hærri en verðmæti upprunalegu vörunnar.
Hafa skal samband strax við Leikskólann Sjáland, í síma 578-1210 eða með tölvupósti á netfang: idab@sjaland.is og tilgreina galla.
Að öðru leyti vísast til laga um húsgöngu- og fjarsölusamninga nr. 46/2000 og laga um neytendakaup nr. 48/2003.
Trúnaður og persónuupplýsingar
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði, um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin.
Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.